2. febrúar 2010

Kistuvarpið

Táknmyndir þjóðarinnar – þá og nú

"Við teiknarar erum handbendi valdsins, bæði hins veraldlega og hins andlega." Þetta var meðal þess sem kom fram í fyrirlestri Godds í ReykjavíkurAkademíunni síðasta föstudag, en fyrirlesturinn má horfa á hérna.

Fyrirlesturinn, Táknmyndir þjóðarinnar – þá og nú, fjallaði um valið á þeim táknum sem síðar urðu að táknmáli íslenska lýðveldisins. Framsetning þessarra tákna hangir saman við sögu prentmyndasmíði og sögu grafískrar hönnunar á Íslandi. í fyrirlestrinum sem er fyrst og fremst í myndrænu formi er borið saman það andrúmsloft sem ríkti gagnvart þessum táknum á þeim tíma sem þau urðu til og virðing þeirra í samtímanum.

Ýmsar hugmyndir komu fram í fyrirlestrinum og ekki síður í umræðum, þar á meðal sú pæling "Hvort við ættum að búa til nýjar draumráðningarbækur þar sem við lesum úr lógóum stórfyrirtækja."

 

Guðmundur Oddur er prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Meðfram kennslu starfar sem myndlistarmaður, sýningastjóri og grafískur hönnuður. Á síðustu 10 árum hefur hann safnað saman drögum að sögu grafískrar hönnunar á Íslandi.

 

var haldinn í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121 frá kl. 12:00 -13:30 föstudaginn 29. janúar  fyrir fullu húsi

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur. 

Meira
Nýr kínversk-íslenskur menningarsjóður

Stofnaður hefur verið menningarsjóður sem ber enska heitið China Iceland Cultural Fund. Hvatamaður og fjárhagslegur bakhjarl sjóðsins  er kínverski kaupsýslumaðurinn og ljóðskáldi...

 
Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...